13.5.2009 | 09:09
Vel gert hjá Jóhönnu og félögum
Ég settist niður við sjónvarpið þegar lag númer 9 var fluttog var nánast viss um að ég hefði misst af íslendingunum. Ég leit í Moggann og sá að framlag Íslands yrði númer 12 þannig að ég ákvað að sitja næstu tvö lög af mér og hlusta síðan á Jóhönnu.
Ég má hrósa happi yfir að hafa ekki misst af herlegheitunum því Jóhanna var frábær, söng óaðfinnanlega, geislaði af fegurð og þokka, allt atriðið var smekklegt og manni leið bara vel á meðan á því stóð og á eftir.
Ég og bóndi minn skelltum okkur síðan í 5 km göngu og þegar við komum heim fréttum við að Jóhanna og félagar hefðu komist áfram í úrslitakeppnina sem fer fram á laugardaginn og það er bara gaman.
|
Mikil ánægja með úrslitin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
mitt er þitt
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 558
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar




Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.